Friday, February 10, 2006

Um gamla bíla og fjárlög

Árið 2004 skrifaði ég grein um fegurð þess að aka um á gamalli druslu, með tilheyrandi ráðleggingum um hvernig maður eigi að finna hina réttu, hvernig umgangast eigi hana osfv. Einhversstaðar í þeirri grein var ég að velta fyrir mér hvernig bíl guð mundi aka. Ég var nokkuð viss um að hann æki 1963 árgerð af Lincoln Continental með "sjálfsmorðshurðunum." Mér finnst það bara einhvernveginn liggja beint við. Lee, vinur minn hélt því hinsvegar fram statt og stöðugt að Guð æki Oldsmobile því það væri svona bifreið hvunndags-mannsins (Lee er Canadamaður). Af þessu má sjá að skiptar skoðanir eru á þessu máli. En ef guð er þessi mikli hönnuður sem um er talað, þá held ég að hann hljóti að aka um á amerískum jálki frá sjötta eða sjöunda áratugnum. Einhverjum svona, forstjóra bíl með nógu plássi fyrir teikningar, brauð og vín. Síðan er náttúrulega annað mál með Jesús. Hann er svona ríkur hippi held ég, Capy-hippy. Ég gæti alveg trúað því að hann eigi lífrænan dísil van (bio-diesel van), með nóg af plássi fyrir brimbrettið og útileigubúnaðinn og öll kraftaverka-gadgetin. Hann gæti líka verið að pæla í einhverjum svona hybrid týpum eins og Toyota Prius eða Honda Insight eða eitthvað í þá áttina.
Ástæðan fyrir öllu þessu þvaðri er að ég var að hlusta á einu almennilegu útvarpsstöðina sem næst á íslandi í dag, BBC World Service og þar var verið að tala um að áhrifamenn innan Evangelisku kirkjunnar í BNA væru farnir að predika um nauðsyn þess að fara að íhuga alvarlega hvernig við getum barist á móti auknu hitastigi jarðar, og minnkað losun koltvísýrings út í andrúmsloftið. Herferð þeirra heitir einmitt: What would jesus drive? Hér er önnur (þess má geta að ég átti einu sinni Plymouth Fury).
Fokið er í flest skjól fyrir Bush-stjórnina, þegar hans eigin kristinlegu repöblikanar eru farnir að slá á fingur honum. Eitthvað drastískt fer sjálfsagt að gerast í náinni framtíð þar á bæ. En það þarf þó ekki að vera, Bush þarf ekki nema bara að höfða til samlanda sinna með hræðsluáróðri eins og var birtur í gær varðandi frækilega framgöngu varnamálaráðuneytisins þegar komið var í veg fyrir hryðjuverkaárás í LA árið 2002. Hmm... af hverju er kallinn allt í einu að mynnast á það núna? Og síðan þarf ekki nema bara að tala við NRA og predika um frelsi og "The American Way of Life" og þá gleyma menn þessum smáatriðum varðandi breytingar í veðurfari og meðfylgjandi fellibylji osfv. Selective memory, kalla þeir þetta, eða húsbóndamynni.

Heyrði annars nokkur tillögurnar um nýju fjárlögin hjá Bush stjórninni?
þeim finnst það bara helvíti góð hugmynd að taka fé frá menntamálum, listum og heilsugæslu til þess að leggja aukinn kraft í hernaðarmálin. Sniðugt. Ætli það gætu verið einhver tengsli milli fjárlagatillaga og fréttunum af hryðjuverkunum sem komið var í veg fyrir árið 2002?
Já takk, gætum við fengið 462,7 billion dollara til að leggja í hernaðarmálin? Hey því ekki það? Klárum dæmið bara, fólk getur ekki lifað á því að kunna að lesa og fá læknisaðstoð þegar það þarf. Hvað græðum við á því.
Þess má geta að fjárlög BNA til hernaðarmála eru sjö sinnum hærri en Kínversku hernaðar fjárlögin, sem eru næst í röðinni. Til gamans mæli ég með því að lesendur fylgist með fréttum næstu vikurnar. Ég tel ekki ólíklegt að mikið verði rætt um hryðjuverkaógnina. Réttlætingin er nauðsynleg.

Of all the enemies to public liberty war is, perhaps, the most to be dreaded, because it comprises and develops the germ of every other. War is the parent of armies; from these proceed debts and taxes; and armies, and debts, and taxes are the known instruments for bringing the many under the domination of the few. In war, too, the discretionary power of the Executive is extended; its influence in dealing out offices, honors, and emoluments is multiplied; and all the means of seducing the minds, are added to those of subduing the force, of the people. . . . [There is also an] inequality of fortunes, and the opportunities of fraud, growing out of a state of war, and . . . degeneracy of manners and of morals. . . . No nation could preserve its freedom in the midst of continual warfare. . . .
-James Madison, fjórði forseti Bandaríkjanna

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Hvar ætli rauða þruman sé niður komin. Það er kanski enn verið að misnota hana....

1:59 PM  
Anonymous Anonymous said...

Ég get ekki annad en velt fyrir mér hvort ég thætti vinsæll bloggskrifari ef ég skrifadi langan hardordan pistil í gard Mogens Lykketoft eda Anders Fogh Rasmussen.
Er Gud yfir thad hafinn ad ferdast í leigubílum um helgar? Á áfengisløggjøfin ekki vid um hann? Madur spyr sig.

2:42 AM  
Blogger Halldor said...

ég held að guð eigi svona fríkort til þess að komast út úr jeilinu ef svo ólíklega vill til að einhver hafi dug í sér að handtaka hann fyrir ölvunarakstur. Síðan hefur mér samt alltaf þótt bara nokkuð ljúft að ferðast með leigubílum en það er kostnaðurinn sem skemmir. Ég hugsa að kallinn hringi bara í Hreyfil um helgar. Það er bara miklu þægilegra. Hvaða staði ætli hann stundi? Kanski Grand Rokk. Skákbytta?

5:16 AM  
Anonymous Anonymous said...

já.. pottþétt grand rokk. það er staður sem passar guði.

12:41 PM  
Blogger Halldor said...

varaðandi rauðu þrumuna eða Tótó, þá er aldrei að vita. Hann gæti ennþá verið á ferðinni einhversstaðar.
Okkur tókst ekki að drepa þann bíl alveg. Þótt við reyndum báðir.
Ég lenti í smá stuði við einhverja gamla kellingu á ægisíðunni og braut hjá mér vinstra stöðu-og stefnuljós. Þá var bara farið á bílastæði reykjavíkurflugvallar og fundið sér nýtt ljós. Þetta var ekkert mál hérna í gamladaga.

2:56 PM  

Post a Comment

<< Home