Wednesday, February 01, 2006

Framvindan


Myndavélastuldur.


Í nótt sendi ég e-mail til Paris Handball og US Ivry Handball varðandi leikmenn þeirra, þá Olivier Girault og Luc Abalo. Já það kemur í ljós núna að tveir eru grunaðir í þessu máli þótt Abaló sé raunar líklegri þar sem han er yngri og hann stundar nám í listaskóla (gæti haft einhver not fyrir myndavél).
Ég gerði Liðum þeirra í Frakklandi ljóst að ég væri svekktur út í þessa leikmenn og ósáttur við framkomu þeirra við mig. Ég sagði þeim þó að ég mundi ekki gera neitt meira mál út úr því ef þeir hefðu samband við mig nú þegar og kæmu vélinni til skila eða veittu mér ákjósanlegar skaðabætur. Ef þeir hefðu ekki samband við mig, gerði ég þeim ljóst að ég mundi hafa samband við Franska landsliðið, franska handknattleikssambandið, og síðast frönsku dagblöðin.
Ég gerði þeim ljóst að ég hefði menntun í blaðamennsku og færi létt með að koma þessum upplýsingum á framfæri ef nauðsyn bæri til.
Nú gef ég þeim einn dag til þess að bregðast við emilunum og sendi síðan fleiri. Þetta er mikið aksísjón.

1 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þetta er örugglega eitt ótrúlegasta mál sem ég heyrt um..
Gó!! drullusokkur...

11:31 AM  

Post a Comment

<< Home