Saturday, September 17, 2005

Um kaffi og sveitarómantík

Ég hef nýlokið við að drekka eina kaffikönnu. Það er orðið langt um liðið síðan mér gafst síðast tóm til þess að gera slíkt. Verðleikar mínir hafa verið í beinu orsakasambandi við það, því eins og vitað er þá tengjast vitsmunir manna beint við það magn kaffis er þeir neyta. Af því má leiða að það sé hverjum manni holt að drekka eins og eina kaffikönnu í einni bunu, einu sinni í mánuði, til þess að halda til streitu vitsmunalegri þróun sinni og sköpunargleði. Þetta er hins vegar mín fyrsta kaffikanna í einni atrennu sem ég hef innhalað síðan í júní og þykir það mjög slök nýting, og ég að sama skapi slakur. Hvað hef ég mér til málsbóta? Lítið mundi ég segja. Enda ófyrirgefanlegt með öllu að vera með einhvern aumingjaskap í kaffidrykkju þótt maður hafi mikið að gera. Svona álíka ófyrirgefanlegt og að stela geisladiskum úr partíum, eða sofa hjá konu vinar síns eða ganga í lögregluna. Þetta sumar hefur hinsvegar verið alveg svakalega útúrbókað, og má í raun segja að mér létti því nú er haust. Samt hef ég ekki gert neitt, og er það einkennilegt í ljósi þess að ég hef verið upptekinn frá því í vor.
Menningarneyð hefur ríkt meðfram kaffidrykkjuleysinu. Það er slæmt að hafa ekki komist á neina tónleika í sumar, og aðeins á listasýningar teljandi á fingrum annarrar handar. Þetta er ekki til eftirbreytni, og breyting til batnaðar volkrast um einhversstaðar á hummlistanum.
Fyrir náttúruunnendur þá eru gæsirnar komnar á Hvanneyri og biðja jafnan um kaffidreytil á morgun- og kvöldflugum sínum hér yfir Odda. Hvað á maður að gera við gæs sem biður um kaffi? Nú, ég hef komist að því að gæsir eru sælkerar miklir, og þeim mun minni pjúristar, og vilja þær nær undantekningarlaust kaffi með rjóma og sykri. Ég hef illan bifur á slíku háttalagi en fyrirgef þeim þar sem þær eru jú, eftir allt saman, bara gæsir. Í Fuglar í Náttúru Íslands segir: "Hljóð heiðargæsar eru áþekk grágæsarhljóðum, en skærari. Köllin eru í tveimur hljóðtáknum í senn: Ank-ank. . ., Vink-vink. . .Hættumerki eru hástemmd, skær nóta, en heiðagæs er ræðin, bæði á beit og stundum á flugi." Við þetta má bæta hljóðtáknið: gaff-gaff eða kaff-kaff.. sem þær kalla til mín, sér í lagi á morgnanna og heimta kaffi. Maður réttir þeim litlafingur og þær taka Vísakortið.
Það má raunar segja um flest dýr að þau kunna ekki að meta svart kaffi. Til dæmis þá eru hestar mun sólgnari í tyggjó en kaffi enda hjarðdýr svipað og ljóskur. Einnig reyndi ég lengi vel að kenna hundinum mínum að drekka kaffi, en hún fékkst ekki til þess. Það er raunar ekki að marka það hundspott því hún var óskammfeilin mjög og mikill sérvitringur og kann ástæða hennar fyrir að neita kaffinu að hafa verið til að storka mér meira en nokkuð annað. Aftur á móti hef ég heyrt að hundum sé hættara við að gerast reykingamenn en kaffínistar... hefur hver sinn djöful að draga. Ég hitti eitt sinn slíkan reykingahund og átti við hann stutt spjall, en hann var ör og ekki skrafgjarn og glefsaði í reyk eiganda síns á milli setninga, sorglegt mál. Kettir eru hinsvegar miklir kaffidrykkjumenn, og er það löngu frægt, og má í raun segja að þetta sé það eina jákvæða sem ég get séð við þessar maskínur helvítis sem kettir eru. Ég hef að vísu ekki smakkað kattakjöt enn svo ekki er öll von úti enn fyrir Felis Domestica.
Já það er rómantík í sveitinni piltar og stúlkur og kaffið flæðir yfir barma baðkaranna.

2 Comments:

Blogger Halldor said...

mér líst ekki á þessa innrás ruslpóstsins á athugasemdakerfið mitt og hef ég hugsað mér til flutnings. Það er þó ekki komið lengra en það ennþá.

4:39 PM  
Anonymous Anonymous said...

Djöfull ertu vel máli farinn, hvernig getur maður sagt annað? Sammála þér með ruslpóstinn. Btw. áhugasamir geta beðið spenntir eftir að ég skjóti á loft nýja hugarfóstrinu mínu sem kallast "Lalli epli... tekur í lurginn" eða eitthvað í þá áttina. Enn sem komið er, er þetta bara vinnuheiti en örvæntið eigi, þetta er á leiðinni og þér Dóri Djöfull munuð vera ein af söguhetjunum.

10:04 AM  

Post a Comment

<< Home