Friday, January 19, 2007

um smyrla uglur og afmæli

Jú, það er eins og fyrirmenni hér í bæ hafi ekki skotið við skollaeyrum á því rausi er hér fór fram um kúltúrleysi Victoriu borgar. Enn verktaki hér í bæ hefur boðið listasafni victoriu stærðarinnar húsnæði undir listasafn gegn því að borgarskipulagi verði breytt til þess að það sé hægt. Etthvað rotið er í Danaveldi, því verkamenn eru ekki beinlínis artsí hér frekar en annarstaðar, svo eitthvað hengur á spýtunni. En nóg um það.

Hér var stórafmæli um daginn og velti ég því fyrir mér havða ég ætti að gera í tilefni af tveggja ára afmæli þessarar vefskrár. Mér datt í hug að gera einn af tveimur hlutum en þeir voru: Að leggja skránni í bakgarðinum, prenta út allar færslur og kalla þetta gott, eðör uppfæra síðuna sjálfa og útlit hennar. Seinni valmöguleikinn varð fyrir valinu og má vænta einhverja breytinga hér á næstunni. En skrif munu halda áfram um sinn. Þetta mun vera 70. færslan.

Yfir í alvarlegri mál. Ég var að hjóla niður í bæ um daginn þegar ég sé gamlan vin koma svífandi niður og setjast í tré í um fimm metra fjarlægð. Nú dettur eflaust einhverjum í hug að þarna sé Fenrisúlfur nokkur á ferð. Það væri ágætis ágiskun ef frátalið er sú staðreind að úlfar sitja sjaldnast í trjám og geta aukinheldur ekki flogið. Nei, þetta var ekki heimskautaúlfurinn Úlfur (canis loupus arctos boozus) heldur Smirillinn. Smirillinn (Falco Columbarius) hefur heimsótt mig áður og sú heimsókn fengið umfjöllun á þessum síðum. Líkt og í fyrra skiptið horfðumst ég og smyrillinn í augu um nokkra stund en í þetta skiptið var það smyrillinn sem var að þvælast á mínu umráðasvæði en ekki öfugt eins og síðast er við hittumst á fjöllum á Íslandi. Smyrlar hér er kallaðir Merlin eða Pigeon Hawk. Merlin vegna þess að í evrópu fyrr á tímum máttu kven-fálkatemjarar (émerillons á frönskunni, hence Merlin) einungis fljúga Smyrlum, því þeir þóttu kvenlegir. Pigeon Hawk er komið frá því að anatómískt eru Dúfur og Smyrlar keimlíkir þótt ekki sé beinlínis hægt að bera þau saman að öðru leiti. Smyrlar eru þekktir fyrir að vera þöglir mjög, og kom það ekki á óvart að ég fékk ekkert svar þegar ég spurði smyrilinn hvurn djöfulan hann væri að gera hérna lengst inní borg. En eftir störukeppni og eitthvað röfl af minni hálfu fékk ég þó uppúr honum að hann væri hérna vegna lögregluráðstefnu í Seattle þann 19. og hann væri aðeins að pústa hérna á þessari grein áður en hann flygi yfir sundið.

Ég rakst nokkru seinna á annan merkilegan fugl á sömu blokk og Smyrilinn. Þar var á ferð Blettaugla eða Spotted Owl (Strix occidentalis) sú at arna er nokkuð sjaldgæf og er talið að einungis séu um 24 í Kanda. Þær eru eingöngu hér á suðvesturhorninu og hafa farið illa út úr brjálæðislegu skógarhöggi heimamanna. Þessi Ugla sat á grein og rúllaði hausnum á öxlunum eins og uglum og feitlögnum svörtum konum er tamt. "Já komdu sæl hér frú Ugla," sagði ég og hún rúllar hausnum. Uglur eru þekktar sem gáfuleg dýr og eins og allir vita er uglan kennitákn viskugiðjunnar Aþenu. Þessi staðreind hefur gert uglur nokkuð snobbaðar og getur reynst erfitt að plata þær í samræður. Svo þessi ugla sveif yfir í næsta tré hljóðlaus og tignarleg. Ég rölti þarna yfir að trénu og ákvað að reyna aðra tækni: "Já ég las í New York Times í morgun að Bandaríkjamenn hefðu sprengt í loft upp bílalest í Somalíu, með innanborðs leiðtoga og háa herra í islamiska andspyrnuhópnum þar í landi. Hver er þín skoðun á þessu máli?" Þá gat hún ekki setið á sér lengur: "Já ég heyrði þetta á CBC í morgun, ég veit eiginlega ekki hvað er hægt að segja um utanríkisstefnu bandaríkjamanna á þessum tímapunkti. Þessi alheimslöggu taktík hefur nú ekki farnast vel hjá þeim til þessa. Það er spurning hvort þeir séu búnir að gleyma mistökum Bush eldri þarna í sómalíu og klaufalegri taktík Clintons við að draga sig út úr þeim átökum... Það er náttúrulega alltaf spurning hvort öfga-hægrisinnaðir múslimar séu góð ríkisstjórn fyrir Sómalíu en er það hlutverk bandaríkjanna að standa í vegi fyrir því? Ég held ekki, og að svo stöddu er það spurning hvort hin öfga-hægrisinnaða ríkisstjórn bandaríkjanna sé nokkuð svo góð hugmynd heldur. Ég verð að segja eins og er að það hefur ekki mikið positíft komið frá þessarri ríkisstjórn undanfarin, tja, fjögur ár eða svo. Og fyrir okkur uglur sem höfum þurft að eiga við náttúruspjöll hér í bresku kólömbíu þá er náttúrulega svolítið erfitt að díla við það að bandaríkjastjórn sé einu sinni að hugsa um að opna þjóðgarðana í Alaska fyrir olíuboranir. Ég veit að þetta er ekki beintengt spurningu þinni en ég vildi bara skapa smá umræðu um það líka. Ég vona bara að bandaríkska þjóðin drattist til að líta í eigin barm og reyni að taka einhverjar almennilegar ákvarðanir við kostningakassana á næsta ári. En í hreinskilni sagt sé ég engar stórkostlegar breytingar í amerískri utanríkisstefnu næstur átta árin."
"Já það er einmitt það. Ha! Gott að fá þitt inlegg í þetta mál", sagði ég. "Nei ekki málið, sagði Uglan, annars þarf ég að rjúka en ég heiti Bergrós gaman að kynnast þér og vonandi hittumst við síðar." "Jú seinna meir, Bergrós. Halldór hér." "Chao," sagði Bergrós og sveif inní myrkrið.

4 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Ég veit ekki hvernig thú vardst svona fródur og vídlesinn, greinandi hverja fuglatýpúna á fætur annarri líkt og væri thad almenn thekking. En mig langar ad skjóta inn frædipunkti sem mig rámadi í er ég las um franskan uppruna ordsins merlin en hann er sá ad ordid denim (gallabuxnaefni fyrir thá óvídlesnu) er líka ættad frá Frakklandi og nánar tiltekid bænum De-Nimes thar sem thad var fyrst búid til. Thad tharf engan málasnilling til ad átta sig á ad tharna er ákvedid samhengi sérstaklega í ljósi thess ad s-id er hljótt í framburdi. Takk fyrir mig.

11:07 AM  
Blogger Halldor said...

Jú þetta var góður punktur úlfur.
Takk fyrir það. Aukinheldur, vil ég taka fram að ég er hvorki svona fróður, né víðlesinn. spurning um rannsókinarvinnu.

9:18 AM  
Blogger ingi rafn said...

snilldar færsla

9:55 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég er enn að átta mig á því hvort við séum í alvurinni skyld? "Það er kannski spurning um smá rannsóknarvinnu?". Meira bullið sem kemur upp úr þér..! Frábær færsla...!:)
Kv. Litla bestan

3:05 PM  

Post a Comment

<< Home