Monday, September 25, 2006

um tilraunir hemúls í húsgagnasmíðum

já komið þið sæl.

Nú, hinn villuráfandi hemúll álpaðist inn í hinn einkennilega ómáladeildarvæna heim sérsmíðaðra húsgagna. Í þessum ilmandi en ógnvekjandi heimi fékk hemúllinn þá feikigóðu hugmynd að smíða samkvæmt tommukerfinu norður ameríska. Það var illa ígrunduð áætlun. Því þótt hemúllinn hafi á stundum álpast eftir tommustokknum tommumegin, er ekki hægt að segja að hann sé beinlínis heimavænn á þeim gapastokki (mnjes hm hm ). Aukinheldur var ráðist á garðinn þar sem hann var hæfilega hár því hemúllinn er dreyminn og hefur meiri trú á sjálfum sér en nokkurn tíman hefur fengist sannað að sé réttlætanlegt og í raun oftar farið á hinn veginn. Sem og úr varð í þetta skiptið. Hillusmíði hemúlsins þykir í mesta lagi viðunnandi en þó ber að nefna að reiknishausinn atarna var sífellt með hjólsögina á lofti, endurteiknandi og reiknandi fram og aftur um eyðimörk þá í hemúlsins haus er í flestum er staðsetning stærðfræðikunnáttu. Útkoman kom nokkuð á óvart þar sem samstæðan er heilum tveimur tommum lægri en lagt var upp með en þó í réttri breidd. Þetta þykir nokkuð sérstakt þar sem á teikningum var hæð og breidd sú sama. Í vörn hemúls þá teiknaði sá djöfull hilluna eftir að hafa horft á hillusamstæðu í gegnum glugga í lokaðri verslun í miðbæ Victoríu-borgar og á meðan á sögun stóð birtust tveir félagar hemúls með kassa af ódýrum indjánabjór. Ekki hefur enn fundist botninn á þessari smíð og mun hún halda áfram um skeið samhliða hjólhestalækningum, plötuflokkun og eilífum vonlausum tilraunum til "router"- tengingar sem er hinum ótæknivædda hemúli hinn mesti þyrnir í auga.

seinna meir...

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Indjánabjór og hillusmíði er greinilega vafasöm blanda!
Bjarni

6:47 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hemúll og indíánabjór er vafasøm blanda

2:26 AM  
Blogger Halldor said...

Úlfsmixtúra er vafasöm blanda

7:43 AM  
Blogger Unknown said...

Við viljum myndir af hillunum, sérstaklega með plötunum í? ertu búinn að skafa fyrsta lagið af LP plötunum svo þær passi?

2:06 PM  
Blogger Halldor said...

já mér til happs þá gerði ég ráð fyrir nokkru aukalegu rými fyrir plöturnar. En myndir munu birtast hér innan skamms.

9:19 AM  

Post a Comment

<< Home